STYLE FLOKKUNARVÉLAR

Nákvæmni - Gæði - Afköst

Vandamálin eru til að leysa þau

Flestar flokkunarvélar á markaðnum mæla fisk eftir þykkt vegna þess að flökunarvélar byggja á þeirri mæliaðferð til að ná hámarksnýtingu í flökun. En flestum þykktarflokkurunum fylgja ákveðin vandamál, þeir fara illa með hráefnið, hrista það, kremja eða fleiðra.

Style International hefur á undanförnum árum lagt áherslu á að leysa þessi vandamál. Mikil þróunarvinna hefur verið lögð í að leita að nákvæmri aðferð til að flokka hráefni eftir þykkt, hratt og örugglega og án þess að skemma það.

Mikil afköst en varðveitt gæði

Style flokkunarvélar eru hannaðar til að ná miklum afköstum við nákvæma flokkun á viðkvæmu hráefni eins og fiski. Flokkun án hristings, núnings og með litla vatnsþörf tryggir að hráefnið tapar hvorki þyngd né gæðum.

Flokkunarbönd úr næloni flytja hráefnið og flokka það í allt að 10 stærðarflokka (mismunandi eftir tegundum). Flokkunarrásir flytja hráefninu niður á færibönd með mikilli nákvæmni enda er vídd þeirra stillanleg upp á brot úr millimetra.

En nákvæmni er ekki allt. Afköstin verða einnig að vera góð. Afkastageta Style flokkunarvéla er mjög mikil. Hraðinn á flokkunarböndunum getur verið allt upp í 2,5 metrar á sekúndu (mismunandi eftir tegundum).

Dæmi um afköst á klukkustund:

  • síld/makríll - 50-55 tonn í 8 flokka miðað við 22 rása flokkunarvél.
  • loðna - 25-28 tonn í 8 flokka miðað við 30 rása flokkunarvél.
  • rækja - allt að 5 tonn í 8 flokka, allt eftir stærð vélar.

Forsíða | Um Style | Tölvupóstur | Áfram